Suðurgata - Hamarsbraut, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 248
30. mars, 2010
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 18.09.2009 að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af klettum norðan húsa norðan Hellubrautar/Hamarsbrautar, Suðurgötu, Mýrargötu og Strandgötu. Áður lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnafjarðar fyrir svæðið dags. 2009 og umsögn Húsafriðunarnefndar varðandi Hellubraut 7 dags. 05.05.2009. Áður lagðir fram minnispunktar og svör við athugasemdum frá forstigskynningarfundi 25.05.2009. Áður lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs varðandi hverfisvernd. Ný greinargerð og uppdráttur dags. 30. september sl. áður lögð fram. Áður lögð fram gögn dags. 10. janúar 2009 og frá skipulags- og byggingarsviði dags. 8. október 2009. Sviðsstjóri gerði áður grein fyrir viðræðum við eiganda Hellubrautar 9 varðandi lóðarmörk. Sviðsstjóri hefur gert grein fyrir viðræðum við lóðarhafa Hellubrautar 5, sem einnig er eigandi Hellubrautar 7 varðandi lóðarmörk. Lagður fram skipulagsuppdráttur með endurskoðuðum lóðamörkum við Hellubraut. Sviðsstjóri greinir frá viðræðum við eigendur Hellubrautar 7 og 9.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að deiliskipulagstillagan með áorðnum breytingum verði auglýst samkvæmt 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að senda tillögu að deiliskipulagi Suðurgötu - Hamarsbrautar dags. 29.03.2010 í auglýsingu skv. 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."