Suðurgata - Hamarsbraut, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 249
13. apríl, 2010
Frestað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 18.09.2009 að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af klettum norðan húsa norðan Hellubrautar/Hamarsbrautar, Suðurgötu, Mýrargötu og Strandgötu. Áður lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnafjarðar fyrir svæðið dags. 2009 og umsögn Húsafriðunarnefndar varðandi Hellubraut 7 dags. 05.05.2009. Áður lagðir fram minnispunktar og svör við athugasemdum frá forstigskynningarfundi 25.05.2009. Áður lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs varðandi hverfisvernd. Ný greinargerð og uppdráttur dags. 30. september sl. áður lögð fram. Áður lögð fram gögn dags. 10. janúar 2009 og frá skipulags- og byggingarsviði dags. 8. október 2009. Sviðsstjóri gerði áður grein fyrir viðræðum við eiganda Hellubrautar 9 varðandi lóðarmörk. Sviðsstjóri hefur gert grein fyrir viðræðum við lóðarhafa Hellubrautar 5, sem einnig er eigandi Hellubrautar 7 varðandi lóðarmörk. Lagður fram skipulagsuppdráttur með endurskoðuðum lóðamörkum við Hellubraut. Sviðsstjóri greindi áður frá viðræðum við eigendur Hellubrautar 7 og 9. Skipulags- og byggingarráð samþykkti 30.03.2010 að auglýsa deiliskipulagstillöguna og gerði um það tillögu til bæjarstjórnar, sem vísaði málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs á fundi 07.04.2010.
Svar

Frestað.