Suðurgata - Hamarsbraut, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 234
22. september, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs dags. 18.09.2009 að deiliskipulagi fyrir reit sem afmarkast af klettum norðan húsa norðan Hellubrautar/Hamarsbrautar, Suðurgötu, Mýrargötu og Strandgötu. Áður lögð fram fornleifaskráning Byggðasafns Hafnafjarðar fyrir svæðið dags. 2009 og umsögn Húsafriðunarnefndar varðandi Hellubraut 7 dags. 05.05.2009. Áður lagðir fram minnispunktar og svör við athugasemdum frá forstigskynningarfundi 25.05.2009. Lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs varðandi hverfisvernd.
Svar

Lagt fram.Rósa Guðbjartsdóttir vekur athygli á skýrslu sérfræðinga sem Hafnarfjarðarbær lét  gera árið 2002 um stefnumörkun í húsverndun í Hafnarfriði þar sem fasteignin á Hellubraut 7 er ekki talin á meðal húsa sem beri að vernda.Trausti Baldursson bendir á að svo virðist sem um mistök sé að ræða hjá höfundum skýrslunnar þar sem að á skýringarkorti er litur fyrir hús byggð fyrir 1918 en umrætt hús er ekki sýnt með þeim lit.