Stekkjarkinn 5, framkvæmd á óeinangruðu lofti.
Stekkjarkinn 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 224
7. apríl, 2009
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur fyrirspurn um hvort framkvæmd við innréttingu á óeinangruðu skriðlofti sé samkvæmt útgefnu byggingarleyfi. Ítrekað hefur verið óskað eftir skýringum frá húseiganda, en ekkert svar borist. Við skoðun úttektarmanns hefur komið í ljós að framkvæmdir án tilskilins leyfis hafa verið gerðar. Skipulags- og byggingarfulltrúi vísaði 17.02.2009 í 1. mgr. 43. grein skipulags- og byggingarlaga og gerði eiganda skylt að fjarlægja þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið á leyfis, eða sækja um leyfi fyrir þeim að öðrum kosti innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu mundi skipulags- og byggingarfulltrúi leggja til við skipulags- og byggingarráð að dagsektum verði beitt í samræmi við 1. mgr. 57. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 25.03.2008, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: "Skipulags- og byggingarráð gerir húseiganda skylt að fjarlægja þær framkvæmdir sem gerðar hafa verið á leyfis, eða sækja um leyfi fyrir þeim að öðrum kosti innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Skipulags- og byggingarráð frestar málinu og vísar því til skoðunar á Skipulags- og byggingarsviði, þar sem umsókn um byggingarleyfi hefur borist.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122377 → skrá.is
Hnitnúmer: 10038607