Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breytt landnotkun austan Skútahrauns
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 220
24. febrúar, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga sviðsstjóra um að landnotkun verði breytt úr iðnaðarsvæði í athafnasvæði á svæði sem afmarkast af Hólshrauni til norðurs, veghelgunarsvæði fyrirhugagaðs Álftanesvegar og bæjarmörkum að Garðabæ til austurs, Stapahrauni til suðurs og húsum austan Bæjarhrauns til vesturs. Með breytingunni væri opnað fyrir að unnt væri að leyfa starfsmannabústaði og gistiheimili á svæðinu að uppfylltum tilheyrandi skilyrðum og jafnframt bæta umhverfi þess frá því sem nú er. Áður lögð fram samantekt skipulags- og byggingarsviðs á umhverfisáhrifum fyrirtækja á svæðinu dags. 30.03.2008.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna málið áfram og leita síðan álits Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Skipulagsstofnunar á því hvort starfsemi á svæðinu samræmist skilgreiningu á athafnasvæði í skipulagsreglugerð.