Krýsuvík, uppsetning á fræðsluskiltum.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 227
26. maí, 2009
Annað
Fyrirspurn
Skrifstofa menningar- og ferðamála óskar 08.04.2009 eftir leyfi til að setja upp 5 fræðsluskilti við Seltún í Krýsuvík skv. meðfylgjandi gögnum frá Batteríinu, sem sýna staðsetningu og texta skiltanna. Lögð fram umsögn stjórnar Reykjanesfólkvangs dags. 26.04.2009. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 20.05.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til endanlegrar afgreiðslu skipulags- og byggingarsviðs.