Háuhnúkar við Vatnsskarð Grindavíkurbæ, efnistaka
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 224
7. apríl, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju skýrsla Mannvits: "Efnistaka úr Háuhnúkum við Vatnsskarð í Grindavíkurbæ (Vatnsskarðsnáma) - Mat á umhverfisáhrifum frummatsskýrsla" dags. mars 2009, ásamt bréfi Skipulagsstofnunar dags. 04.03.2009 þar sem óskað er eftir umsögn um skýrsluna. Umsagnarfrestur fékkst framlengdur til 07.04.2009. Áður lögð fram umsögn sviðsstjóra dags. 19.03.2009. Lagðar fram umsagnir umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21, framkvæmdaráðs/Vatnsveitu Hafnarfjarðar.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn sviðsstjóra.