Öldugata, Öldutún, Ölduslóð, deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 222
24. mars, 2009
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf Þóreyjar Önnu Matthíasdóttur Hringbraut 11 dags. 12.03.2009 ásamt undirskriftarlistum íbúa við Hringbraut, þar sem mótmælt er staðsetningu strætisvagnabiðstöðvar fyrir framan húsið og afgreiðslu þess við samþykkt skipulagsins. Lagðir fram minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs dags. 11.03.2009.
Svar

Þar sem biðstöð strætisvagna hefur verið á þessum stað um áraraðir, og skipulagið var samþykkt í bæjarstjórn 25.11.2008 með biðstöð við Hringbraut á móts við Flensborgarskóla telur skipulags- og byggingarráð að skipulagið skuli standa óbreytt.