Uppland Hafnarfjarðar, rammaskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 241
15. desember, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga Landslags ehf að rammaskipulagi fyrir uppland Hafnarfjarðar dags. 14.02.2008. Áður lögð fram tillaga að forsögn og minnispunktar skipulags- og byggingarsviðs frá fundi með hagsmunahópum 11. og 20. nóvember 2008. Drög að rammaskipulagi voru kynnt á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 24. mars s.l. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu 29.06.2009 til kynningar í Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21, Framkvæmdaráði, Fjölskylduráði og Bæjarstjórn.
Svar

Lagt fram. Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna áfram að verkefninu varðandi greinargerð og frágang á uppdráttum.