Atvinnulóðir, úthlutun nóvember 2007 og mars 2008
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3203
19. júní, 2008
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram afsöl lóða sem borist hafa. Eftirtaldir hafa afsalað sér úthluðuðum lóðum: Áflhella 10 Pólýhúðun ehf /Formaco Tinhella 8 Stál í stál slf.
Jafnframt var lögð fram umsókn Hrauns Bifreiðar-Tæki dags. 9. júní 2008 um lóðina Tinhella 8.
Svar

Bæjarráð staðfestir ofangreind afsöl lóða fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.

Bæjarráð samþykkir jafnfarmt að leggja til við bæjarstjórn:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að úthluta Hrauni Bifreiðum Tækjum lóðinni Tinhellu 8í samræmi við nánari skilmála sem skipulags- og byggingarfulltrúi setur.