Hitaveita Suðurnesja, eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3222
20. mars, 2009
Annað
1
Fyrirspurn
Á fundinn mættu bæjarlögmaður, Stefán Geir Þórisson lögmaður Hafnarfjarðarbæjar, ásamt Ólafi Erni Svanssyni lögmanni, í málarekstri gegn Orkuveitu Reykjavíkur og gerðu grein fyrir niðurstöðu héraðsdóms.
Svar

Bæjarráð fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 18. mars 2009 þar sem Orkuveitu Reykjavíkur er gert að greiða Hafnarfjarðarbæ fyrir hlut bæjarins í HS Orku hf og HS Veitum hf (áður Hitaveitu Suðurnesja hf) ásamt dráttarvöxtum og færir lögmönnum bæjarins bestu þakkir fyrir þeirra störf.