Fornubúðir 1A (Óseyrarbraut 1b)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 269
1. mars, 2011
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir lóðin Óseyrarbraut 1b. Hafnarstjórn lagði til við skipulags- og byggingaráð á fundi 22.12.10 að lóðinni Óseyrarbraut 1b verði skipt upp og sameinuð lóðunum Óseyrarbraut 1 og Hvaleyrarbraut 2 í samræmi við tillögu 2, sjá tillögur í málinu. Skipulags- og byggingarráð heimilaði 18. janúar 2011 að erindið yrði grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. laga nr. 123/2010. Grenndarkynningu er lokið, athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 23.02.2011, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að grenndarkynna nýjar tillögur sem unnar verða í samræmi við innkomnar athugasemdir og umræður á fundinum.