Aðalskipulag Hafnarfjarðar, Ásvellir, breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 14 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1622
27. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
14. liður úr fundargerð SBH frá 20.okt. sl. Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 vegna sjálfsafgreiðslustöðvar fyrir bensín á Ásvöllum dags. 14.05.2007. Skipulagstillagan var auglýst 24.08.2009 skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og lauk athugasemdafresti 06.10.2009. Engar athugasemdir bárust. Skipulags- og byggingarráð samþykkir aðalskipulagsbreytinguna og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að breytingu á Aðalskipulagi - Hafnarfjarðar 2005 2025 hvað varðar Ásvelli svæði Hauka dags. 14.05.2007 og að málinu verði lokið skv. 18. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997."
Svar

Gísli Ó. Valdimarsson tók til máls.   Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.