GT Verktakar ehf, Undirhlíðar, umsókn um námaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 15 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3174
21. júní, 2007
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf dags. 12. júní 2007 frá GT verktökum ehf. þar sem óskað er eftir leyfi til að hefja vinnslu úr námu bæjarins í Undirhlíðum. Í gildi er samningur um afnot af umræddri námu. Erindinu er að öðru leyti vísað til yfirferðar hjá framkvæmdasviði bæjarins sem er að vinna samantekt á málinu fyrir framkvæmdaráð Hafnarfjarðar.