Kaldársel, Kaldárbotnar og Gjárnar, nýtt deiliskipulag
Kaldársel
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3467
29. júní, 2017
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 27.júní sl. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 06.04.2017-18.05.2007. Lagðar fram athugasemdir sem bárust ásamt umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 22. júní 2017. Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti til fundarins vegna þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 22. júní 2017 vegna athugasemda sem bárust. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að ljúka deiliskipulaginu Kaldársel, Kaldárbotnar og Gjárnar í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir nýtt deiliskipulag með áorðnum breytingum fyrir Kaldársel, Kaldárbotnar og Gjárnar og að skipulaginu verði lokið í samræmi við 41. gr. laga nr. 123/2010." Pétur Óskarsson vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa máls.
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir framlagða tillögu skipulags- og byggingaráðs.