Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3310
23. febrúar, 2012
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju bréf FH til byggingarnefndar Kaplakrika sem vísað var til bæjarráðs. Bæjarstjóri fór yfir málið.
Svar

Bæjarráð samþykkir að beina því til umhverfis- og framkvæmdaráðs og sviðsstjóra að undirbúa nú þegar kostnaðar-, framkvæmda- og tímaáætlun vegna frjálsíþróttahús í Kaplakrika, í samræmi við fjárheimildir ársins auk undirbúnings útboða á þeim hluta verksins sem miðast að því að loka húsinu.
Fjármögnun, framkvæmdir og verkumsjón verði á forræði sveitarfélagsins.