Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 254
3. ágúst, 2010
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku til samræmis við áætlanir Landsnets um styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og samkomulag Hafnarfjarðar og Landsnets þar um, sem samþykkt var af bæjarstjórn 11.11.2008. Breytingarnar eiga við raflínur og jarðstrengi frá Geithálsi og Sandskeiði að núverandi og fyrirhuguðum tengivirkjum í Hafnarfirði og áfram þaðan að álverinu í Straumsvík og til Suðurnesja. Bæjarstjórn samþykkti að auglýsa tillöguna ásamt umhverfisskýrslu Eflu verkfræðistofu dags. 18.10.2009. Haldinn var forstigskynningarfundur 07.09.2009. Tillagan var auglýst 16.06.2010 og var umsganarfrestur til 25.07.2010. Athugasemdir bárust. Áður lagðar fram umsagnir Fornleifaverndar ríkisins, Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, Umhverfisstofnunar, umsögn framkvæmdastjórnar vatnsverndarsvæða Höfuðborgarsvæðisins og umsögn stjórnarmanna Hraunavina og samantekt sviðsstjóra á innkomnum athugasemdum. Lagðar fram umsagnir Skógræktar ríkisins dags 20.07.2010, Grindavíkur dags. 01.07.2010 og Sveitarfélagsins Voga dags. 20.07.2010 ásamt athugasemdum frá einstaklingum og félagasamtökum. Umsagnir stjórnar Reykjanesfólkvangs og Garðabæjar hafa ekki borist. Lögð fram umsögn sviðsstjóra á innkomnum umsögnum og athugasemdum dags. 26.07.2010.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að gera tillögu að svari við athugasemdum í samráði við skipulags- og byggingarráð.