Aðalskipulag Hafnarfjarðar, raflínur og tengivirki.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 235
6. október, 2009
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 - 2025 hvað varðar flutningskerfi raforku til samræmis við áætlanir Landsnets um styrkingu raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi og samkomulag Hafnarfjarðar og Landsnets þar um, sem samþykkt var af bæjarstjórn 11.11.2008. Breytingarnar eiga við raflínur og jarðstrengi frá Geithálsi og Sandskeiði að núverandi og fyrirhuguðum tengivirkjum í Hafnarfirði og áfram þaðan að álverinu í Straumsvík og til Suðurnesja. Aðalskipulagstillagan byggir á samþykkt bæjarstjórnar um gerð skipulagsins dags. 11.11.2008. Áður lögð fram umhverfisskýrsla Eflu verkfræðistofu dags. 29.07.2009. Haldinn var forstigskynningarfundur 07.09.2009. Áður lagt fram álit Skipulagsstofnunar á frummatsskýrslu dags. 17.09.2009 og endanleg matsskýrsla Eflu og Landsnets dags. 10.08.2009. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð frestar erindinu vegna nýlegs úrskurðar Umhverfisráðuneytisins.