Deiliskipulag
Heiðarbrún 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 11
9. nóvember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Kjartan Sigurbjartsson Pro-Ark Teiknistofu, leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir lóðina Heiðarbrún 6, L165659, á Stokkseyri. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir að lóðin Heiðarbrún 6, sem er 853m2 að stærð verði parhúsalóð (6-6b), og að heimilt verði að byggja parhús. Húsið verði á einni hæð með risi. Hámarksvegghæð allt að 3,0m og mænishæð allt að 5,0m. Nýtingarhlutfall allt að 0,2.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn Árborgar að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

825 Stokkseyri
Landnúmer: 165659 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000309