Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 103
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 10
26. október, 2022
Annað
‹ 9
10
Svar

10.1. 2210038 - Breiðumýrarholt/Holt L194765 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Hildur Bjarnadóttir hönnuður fyrir hönd Lindu Helgadóttur sækir um leyfi til að staðsetja aðstöðuhús á landinu í 36 mánuði meðan framkvæmdir og uppbygging eiga sér stað. Helstu stærðir eru; 41,7 m2 og 157,5 m3.
Fylgiskjöl
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf Breiðamýrarholt - Aðaluppdráttur mótt 05.10.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag sem er í vinnslu. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar 10.2. 2210161 - Austurhólar 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Jóhann Einar Jónsson hönnunarstjóri f.h. Austurhóla ehf. sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús á fimm hæðum með 40 íbúðum. Stærðir: 3.625,7 m2 og 10.734,7 m3.
Fylgiskjöl
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf Austurhólar 4 - Aðaluppdrættir mótt 14.10.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar 10.3. 2210162 - Heiðarstekkur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Ögmundur Skarphéðinsson hönnunarstjóri f.h. Sveitarfélagsins Árborgar sækir um leyfi til að hefja undirbúning jafðvinnuframkvæmda við 2. áfanga Stekkjarskóla. Einnig er óskað eftir óverulegri stækkun byggingarreits til suðurs um u.þ.b. 2 m. Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Framkvæmdin er í umfangsflokki 3.
Byggingaráform fyrir gröft og fyllingu eru samþykkt með fyrirvara um að skipulagsnefnd samþykki óverulega stækkun byggingarreits.
Takmarkað byggingarleyfi fyrir gröft og fyllingu verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir eða séruppdráttur verkfræðinga fyrir gröft og fyllingu.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og húsasmíða- eða múrarameistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd.

Ósk um óverulega stækkun byggingarreits er vísað til skipulags- og byggingarnefndar.

Niðurstaða þessa fundar 10.4. 2209306 - Fossnes 14 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Bílasölu Suðurlands ehf. sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við iðnaðarhúsnæði. Helstu stærðir eru; 199,4m2 og 886,1m3.
Málinu var áður á 102. fundi og var þá vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
Fylgiskjöl
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf Fossnes 14 A mótt 26.09.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi í samræmi við umsókn og þau gögn sem fyrir liggja.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag sem er í vinnslu. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar 10.5. 2210083 - Bjarmaland 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi Stefán Þ. Ingólfsson hönnuður fyrir hönd Magnúsar Daníels Ingólfssonar sækir um leyfi til að byggja garðskála. Helstu stærðir eru; 16,9 m2 og 54,6 m3.

Fylgiskjöl
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf Bjarmaland 16 - Aðaluppdráttur mótt 07.10.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Viðbyggingin er út fyrir byggingarreit og áformin ekki í samræmi við deiliskipulag. Erindinu hafnað. Niðurstaða þessa fundar 10.6. 1905428 - Suðurleið 5 - Aðaluppdrættir Guðmundur Gunnarsson hönnunarstjóri sendir inn breytta aðaluppdrætti þar sem gert er ráð fyrir millilofti.
Fylgiskjöl
Suðurleið 5 A mótt 02.10.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Byggingarleyfi var gefið út 16.02.2022.
Breyttir aðaluppdrættir verða samþykktir þegar þeir hafa verið leiðréttir skv. athugasemdum afgreiðslufundar. Niðurstaða þessa fundar 10.7. 2202204 - Tryggvagata 10-12 - Aðaluppdrættir Ásgeir Ásgeirsson hönnunarstjóri sendir inn breytta aðaluppdrætti.
Fylgiskjöl
Tryggvagata 10-12 A_br mótt 14.10.2022.pdf Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Byggingarleyfi var gefið út 30.08.2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir breytta uppdrætti. Niðurstaða þessa fundar 10.8. 2210197 - Kirkjuvegur 11 - Umsókn um niðurrif Sigtún þróunarfélag ehf. sækir um leyfi til niðurrifs að Kirkjuvegi 11. Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Byggingarheimild til niðurrifs verður gefin út að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Vottorð um að eignin sé veðbandalaus verði lagt fram.
- Áætlun um meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs verði lögð fram.
- Byggingarstjóri verði skráður á framkvæmdina.
Niðurstaða þessa fundar 10.9. 2210055 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hjúkrunarheimilið Móberg Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir hjúkrunarheimili. Niðurstaða 103. fundar afgreiðslufundar byggingarfulltrúa Öryggisúttekt skv. byggingareglugerð gr. 3.8.1 hefur verið gerð á nýju hjúkrunarheimili sem stendur á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi.
Byggingarfulltrúi staðfestir að fyrirhuguð starfsemi er í samræmi við samþykkta notkun húnæðisins og gerir ekki athugasemdir við að húsnæðið verði tekið í notkun. Niðurstaða þessa fundar