Larsenstræti 2. - Óveruleg breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 6
6. september, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 31.8.2022: „Larsen hönnun og ráðgjöf, leggur fram tillögu að óverulegri breytingu á gildandi deiliskipulagi Merkilandstúns (Larsenstræti). Um er að ræða lóðina Larsenstræti 2, sem er skilgreind verslunar- þjónustu og athafnalóð. Breytingin felur í sér að gert er útskot á hluti byggingarreits að vestanverðu, til að koma fyrir inntaksrými væntanlegs húss. Aðrir eldri skilmálar deiliskipulags breytast ekki. Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu og óskar eftir fullnægjandi gögnum. Skipulagsfulltrúa er falið að hafa samband við umsækjanda.“ Borist hafa ítarlegri gögn frá hönnuðum.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða, enda liggi fyrir samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar, Langholti 1. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytingartillögu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 , og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.
Skipulags og byggingarnefnd bendir lóðarhafa á að huga að aðgengi gangandi og hjólandi innan lóðar og góð aðstaða sé fyrir hjólreiðamenn.