Beiðni um stækkun á iðnaðahúsnæði
Gagnheiði 37
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 9
12. október, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar dags. 27.9.2022: "Þröstur Hafsteinsson f.h. ÞH Blikk á Selfossi, leggur fram fyrirspurn um hvort leyfi fáist til stækkunar á Gagheiði 37. Stækkun yrði að norðanverðu við núverandi hús, til aukningar á geymsluplássi (plötugeymsla), allt 100m2, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við byggingaráformin, með fyrirvara um jákvæða niðurstöðu grenndarkynningar í samræmi við 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna þarf fyrir lóðarhöfum að Gagnheiði 35, 39 og framvísa þarf samþykki meðeiganda Gagnheiði 37. Tillagan hefur verið grenndarkynnt og hafa borist athugasemdir. Skipulags- og byggingarnefnd tekur undir þær athugasemdir sem m.a. benda til að viðbygging að norðanverðu muni ná út í lóðarmörk og þar með hafa neikvæð áhrif á lóðarhafa Gagnheiði 35. Þá liggur ekki fyrir samþykki meðeigenda Gagnheiði 37. Nefndin hafnar áformum um fyrirhugaða viðbyggingu." Fyrir liggur samþykki meðeigenda í húsinu Gangheiði 37, auk undirritunar frá eigendum hússin Gangheiði 35.
Svar

Fyrir liggur samþykki meðeigenda í Gagnheiði 37 og einnig frá eigendum Gagnheiði 35.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi gefi út byggingarleyfi í samræmi við umsókn og þau gögn sem fyrir liggja.

800 Selfoss
Landnúmer: 162181 → skrá.is
Hnitnúmer: 10059367