Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Fossnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 5
31. ágúst, 2022
Annað
Fyrirspurn
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar, af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa dags. 24.8.2022: „Fernando Andrés C. de Mendonca hönnunarstjóri f.h. Sláturfélags Suðurlands sækir um leyfi til að setja upp þrjú hús fyrir 36 starfsmenn. Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Deiliskipulag liggur ekki fyrir og því þarf að grenndarkynna umsóknina með vísan til 44. gr. skipulagslaga nr 123/2010. Á lóðinni stóðu áður starfsmannahús sem hafa verið rifin. Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.“
Svar

Skipulags og byggingarnefnd hafnar erindinu á þeim forsendum að íbúðabyggð er ekki heimil á svæðinu samkvæmt aðalskipulagi Árborgar og deiliskipulag hefur ekki verið unnið fyrir svæðið.
Þetta erindi samræmist ekki fyrri upplýsingum sem kynntar voru fyrir skipulagsnefnd á fundi 90 & 92.

800 Selfoss
Landnúmer: 161791 → skrá.is
Hnitnúmer: 10116194