Víkurheiði. Framlenging vega - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 3
27. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Sigurður Ólafsson f.h. Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar óskar eftir framkvæmdaleyfi, samkvæmt meðfylgjandi gögnum. Verkið felur í sér lagningu vegar í framhaldi af Víkurheiði B eða D og gera nýjan vegstút inn að verðandi Stekkjaheiði, með aðgengi/aðkomu að Eyði-Mörk 3, Dælustöð við Víkurheiði. Bygging dælustöðvar og endurnýjun Ø300 hitaveitulagnar frá hringtorgi við Suðurhóla að dælustöð við Eyði-Mörk 3 er mjög mikilvæg framkvæmd vegna rekstraröryggis Selfossveitna niður að Strönd (Eyrarbakki og Stokkseyri). Við lagningu vegar fyrir Stekkjaheiði verður lagt niður Ø500 rör vegna skurðakerfis á svæðinu til að tryggja flæði vatns á svæðinu.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi, og leggur til við Bæjarráð Árborgar að umsókn verði samþykkt, og skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.