Geitanes - Umsókn um framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 5
28. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Sigurður Ólafsson f.h. Mannvirkja- og umhverfissviðs Árborgar óskar eftir framkvæmdaleyfi. Verkið felur í sér lagningu útrásar- og yfirfallslagna frá væntanlegri hreinsistöð fyrir Selfoss, að Ölfusá við Geitanes. Einnig verður gerð útrás út í Ölfusá í Geitanesflúðum og grafið fyrir hreinsistöðvarmannvirki, auk frágangs á yfirborði vinnusvæðis.
Málið var tekið fyrir á 3. fundi, skipulags- og byggingarnefndar, 27. júlí.
Svar

Bókun 3. fundar skipulags- og byggingarnefndar:

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir umsókn um framkvæmdaleyfi, og leggur til við Bæjarráð Árborgar að umsókn verði samþykkt, og skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

Bæjarráð samþykkir samhljóða framkvæmdaleyfi vegna lagningu útrásar- og yfirfallslagna frá væntanlegri hreinsistöð fyrir Selfoss, að Ölfusá við Geitanes. Einnig verður gerð útrás út í Ölfusá í Geitanesflúðum og grafið fyrir hreinsistöðvarmannvirki, auk frágangs á yfirborði vinnusvæðis og felur bæjarráð skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.