Ljósleiðari - Framkvæmdaleyfi - Frá Óseyrarbrú (sveitrafélagamörk vestri) - Að Árlundi (sveitarfélagamörkum í austri)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 1
15. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Elísabet Guðbjörnsdóttir verkefnastjóri fjárfestingaverkefna hjá Ljósleiðaranum ehf, leggur fram ósk í tölvupósti dags. 8.6.2022, um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðar lagnaleiðar Ljósleiðarans meðfram Eyrarbakkavegi, áfram eftir Gaulverjabæjarvegi og sveitarfélagamörkum við Árlund. Framkvæmdin er liður í því að tengja saman sæstrengi Farice en er einnig forsenda þess að hægt sé að klára uppbyggingu ljósleiðara í Árborg. Plægt verður niður þríburarör og er stofn fyrir Mílu lagður í leiðinni inn að Stokkseyri og Eyrarbakka. Búið er að sækja um leyfi frá Vegagerðinni og er verið að semja við alla viðeigandi landeigendur. Verktími er áætlaður á tímabilinu júní til ágústloka 2022.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn/bæjarráð Árborgar að umsókn verði samþykkt og að skipulagsfulltrúa verði falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.