Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Móavegur 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 93
8. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Kristinn Ragnarsson hönnunarstjóri f.h. Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sækir um leyfi til að byggja kirkjubyggingu sem samanstendur af kirkjuskipi, safnaðaheimili og íbúðahluta fyrir presta. Helstu stærðir eru 726,3 m2 og 3.995,9 m3.
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.