Faghópur um leikskóla
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 5
28. júlí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Í samræmi við afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar þann 22. júní sl. var lagt til að skipað yrði á ný í faghóp um leikskóla. Lagt var til að starfshópnum yrði falið að vinna áfram að málefnum leikskóla í sveitarfélaginu með það meðal annars fyrir augum að koma með tillögur að úrbótum varðandi færanlegt kennsluhúsnæði við leikskólana Árbæ og Álfheima.
Svar

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fulltúar í starfshópnum verði Sveinn Ægir Birgisson, Brynhildur Jónsdóttir, Arnar Freyr Ólafsson, Atli Marel Vokes, Júlíana Tyrfingsdóttir, Guðný Ingibjörg Rúnarsdóttir og Margrét Björk Brynhildardóttir og felur bæjarstjóra í samráði við sviðstjóra fjölskyldusviðs að útbúa drög að erindisbréfi fyrir starfshópinn sem lagt verður fyrir bæjarráð til samþykktar.