Atlavík 1-11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 87
16. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Jórvík fasteignir ehf. sækir um leyfi til að byggja 6 íbúða raðhús. Helstu stærðir eru; 595,8m2 og 2.450,7m3
Svar

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.