Deiliskipulag - Hreinsistöð við Geitanes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarstjórn nr. 48
11. maí, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga af 94. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 4. maí sl., liður 3. Deiliskipulag - Hreinsistöð við Geitanes Bæjarstjórn Árborgar samþykkti á fundi sínum þann 16.2.2022, að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir hreinsistöð í Geitanesi, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur til uppbyggingar á tveggja þrepa hreinsistöðvar fyrir fráveitu við Geitanes norðan við flugvöllinn á Selfossi. Markmið framkvæmdarinnar er að koma á hreinsun skólps frá Selfossi sem uppfyllir skilyrði laga og reglugerða, en í dag er skólp að mestu losað óhreinsað í Ölfusá. Deiliskipulagið tekur einnig til aðkomu að lóð hreinsistöðvarinnar, lóðarinnar sjálfrar og nærumhverfi eftir því sem þörf krefur m.a. vegna útrásar í Ölfusá. Í deiliskipulaginu er gerð grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum og settir fram skilmálar um landnotkun, mannvirki, útrás, vernd náttúru og frágang. Deiliskipulagstillagan var auglýst í Lögbirtingablaði, Fréttablaðinu og Dagskránni miðvikudaginn 16.3.2022 og var veittur frestur til athugasemda til og með 27.4.2022. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Veðurstofu Íslands, Umhverfisstofnun, Landsneti, Fiskistofu, Veiðifélagi Árnesinga, Vegagerðinni, Isavia og Mannvirkja- Umhverfissviðs Árborgar. Í umsögn Veðurstofu Íslands er bent á að í ríkjandi suðlægum og suðvestlægum áttum yfir sumarið geti loftmengun að norðurbyggð Selfoss og Árbæjarhverfi. Í umsögn Isavia( með tilvísun í reglugerð 464-2007 um öryggissvæði) er tekið fram að til að tryggja að byggingar hreinsistöðvar og tengdra mannvirkja sem og vegna gróðurs, gangi ekki upp fyrir hindrunarfleti flugvallarins á Selfossi. Slíkar hindranir geti skert öryggi loftfara og séu líklegar til að draga úr öryggi flugvallarins. Isavia mælist til að unnið verð kort með hindranaflötum skv. nýju deiliskipulagi, og þá í samráði við Isavia og Samgöngustofu. Einnig er vakin athygli á, að á byggingartíma gilda kröfur um hæðarhindranir svo sem vegna byggingarkrana og viðlíka búnaðar, og er óskað eftir samráði við Isavia og Samgöngustofu um þau mál. Allir umsagnaraðilar gáfu jákvæða umsögn fyrir utan ofangreindar ábendingar Veðurstofu Íslands og Isavia. Skipulags- og byggingarnefnd telur rétt að tekið verði tillit til ábendinga Veðurstofu Ísland og að unnið verði kort af hindrunarflötum skv. ábendingu Isavia.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti tillöguna og lagðir til við bæjarstjórn að tillagan yrði samþykkt í samræmi við 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og feli skipilagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við sömu grein laga.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.