Lántökur 2022
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Bæjarráð nr. 17
10. nóvember, 2022
Annað
Fyrirspurn
Kynning á niðurstöðu skuldabréfaútboðs sem fer fram miðvikudaginn 9. nóvember. Ingibjörg Garðarsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn.
Svar

Kynning á niðurstöðu skuldabréfaútboðs. Opið var fyrir innsend tilboð til klukkan 16:00 þann 9. nóvember 2022. Bæjarráð samþykkir tilboð að nafnvirði 1.500.000 m.kr., á ávöxtunarkröfunni 2.99% í sjálfbæran verðtryggðan skuldabréfaflokk ARBO 31 GSB.

Skuldabréfaútboð er samkvæmt fjárhagsáætlun 2022.