Deiliskipulagsbreyting
Bjargslundur 17
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 89
9. mars, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulagas- og byggingarnefndar 15.12.2021: Batteríið Arkitektar leggja fram tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi íbúðarbyggðar í landi Árbakka og Austurvegar 65, Árborg. Gildandi deiliskipulag er frá árinu 2007 og breytt 2008. Deiliskipulagsbreytingin mun taka yfir gildandi deiliskipulag innan deiliskipulagsmarka hennar. Svæðið sem um ræðir liggur norðvestan byggðar á Selfossi, meðfram Ölfusá. Svæðið markast af Ölfusá til vesturs, atvinnuhúsa- og íbúðabyggð til suðurs, útivistarsvæði og fyrirhuguðu vegstæði fyrir þjóðveg til norðausturs. Aðkomur að svæðinu er frá Árvegi, bæði að vestan og austan. Svæðið er að mestu flatlent en hallar lítillega til norðurs í átt að Ölfusá. Víðsýnt er frá svæðinu yfir Ölfusá og Ingólfsfjall. Skipulagstillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2010-2030, þ.m.t. breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2010-2030, sem öðlaðist gildi 28. júlí. 2021. Deiliskipulagssvæðið, um 24 ha að flatarmáli, er skipulagt fyrir íbúðarbyggð með tveimur megin aðkomuleiðum inn á svæðið. Í núgildandi deiliskipulagi var gert ráð fyrir allt að 287 íbúðum. Í breyttu skipulagi er gert ráð fyrir u.þ.b. 550 íbúðum. Þær skiptast í grófum dráttum þannig að um 25% íbúðanna verða í sérbýli, og um 75% íbúðanna verða í fjölbýlishúsum.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykktu tillöguna til auglýsingar á fundi sínum 15.12.2021, en nú hafa orðið smávægilegar áherslubreytingar sem verið er að vinna í og leggur nefndin til að málinu verði frestað á meðan sú vinna stendur yfir.