Fjölgun landeigna
Móskógar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 43
19. janúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 83. fundi skipulags- og byggingarnefndar frá 15. desember sl. liður 4. Fjölgun landeigna - Móskógar Guðrún Bjarnþórsdóttir og Hilmar Þ. Sturluson, lögðu fram umsókn um stofnun lóðar/lands úr landi Móskóga L189982. Um var að ræða spildu ca 1ha að stærð. Gert var ráð fyrir um 2.600m2 byggingarreit fyrir íbúðarhús og bílskúr, allt að 400m2 að stærð og skemmu allt að 400m2. Óskað var eftir að hin nýja landspilda fái heitið Hléskógar.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti landskiptin og heitið á hinni nýju spildu fyrir sitt leyti og lagði til við bæjarstjórn að landskipti og heiti yrðu samþykkt.
Svar

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.

801 Selfoss
Landnúmer: 189982 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090621