Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kirkjuvegur 20
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 78
10. nóvember, 2021
Annað
Fyrirspurn
Guðjón Þórir Sigfússon hönnunarstjóri f.h. Guðlaugar Bergmann Jóhannesdóttur sækir um leyfi til að byggja bílskúr á lóðinni og rífa eldri bílskúr. Helstu stærðir 85,2m2 og 433,4 m3. Eldri bílskúr 26,8 m2.
Svar

Áformin hafa verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 8. september 2021. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkti erindið á 76. fundi og vísaði erindinu til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að tekið verði tillit til athugasemda eldvarnareftirlits.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

800 Selfoss
Landnúmer: 162358 → skrá.is
Hnitnúmer: 10060185