Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eyrargata 21
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 1
15. júní, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 26.1.2022: „Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 1.12.2021. Vegna umsóknar Aðalbjörns Jóakimssonar um byggingarleyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni Eyrargata 21, Eyrarbakka. Byggingarleyfisumsókn var grenndarkynnt og var frestur til að skila athugasemdum til 17. nóvember 2021. Ein athugasemd barst, auk umsagnar Hverfisráðs Eyrarbakka. Núverandi tillaga gerir ráð fyrir breyttu útliti glugga og hurða, og hefur hún verið send Hverfisráði Eyrarbakka til umsagnar ásamt því að óska eftir áliti skipulagshöfunda Verndarsvæðis í byggð á Eyrarbakka. Hverfisráð Eyrarbakka leggst gegn innsendri tillögu og telur hana ekki falla að þeim húsagerðum sem tilgreindar eru í „Verndarsvæði í byggð“ Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindisins og felur skipulagsfulltrúa að ræða við umsækjanda varðandi þann möguleika að færa hönnun hússins nær markmiðum verndarsvæðis í byggð, eða hvort önnur lóð á Eyrarbakka henti betur undir fyrirhugaða byggingu.“ Nú liggur fyrir ein tillaga til viðbótar, þar sem póstum í gluggum hefur verið fjölgað, klæðning húss er breytt auk hækkunar á þaki. Og er þar með komið til móts við athugasemdir og ábendingar Hverfisráðs Eyrarbaka.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framkomna tillögu. Nefndin telur að með nýjum breyttum uppdráttum sé komið til móts við fyrri athugsemdir Hverfisráðs Eyrabakka og umsagnarðaila Verndarsvæðis í byggð. Mælst er til að hugað verði sérstaklega að litavali húss í samræmi við Litaspjald sögunnar.

820 Eyrarbakki
Landnúmer: 165924 → skrá.is
Hnitnúmer: 10053793