Fyrirspurn um breytingu á skipulagi - Móstekkur 14-16
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 88
23. febrúar, 2022
Annað
Fyrirspurn
Mál áður á dagskrá skipulags- og byggingarnefndar 3.11.2021 og 9.2.2022: Lögð er fram lagfærð tillaga að óverulegri breytingu á gildandi deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Bjarkar (Björkurstykkis), vegna lóðarinnar Móstekkur 14-16. Ný tillaga gerir ráð fyrir að byggingarreitur sé færður til á lóðinni og heimilt verði að byggja eina byggingu í stað tveggja áður og íbúðum fjölgað úr 8 í 10 íbúðir. Bílastæði á lóð verða 16. Breytingin kemur til vegna sérstakrar lögunar lóðar. Tillagan hefur verið grenndarkynnt og barst ein athugasemd. Núverandi tillaga hefur verið unnin nánar og kynnt þeim aðila er gerði athugasemdir, og hefur aðilinn gefið jákvæða umsögn um tillöguna í tölvuósti dags. 15.2.2022.
Svar

Skipulags og byggingarnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda skipulagsstofnun tillöguna og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda.
Nefndin leggir til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við ofangreint.