Björkurstekkur 15-19 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 69
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Björgvin Víglundsson f.h. Fellskotshesta ehf sækir um leyfi til að byggja 3ja íbúða raðhús skv. uppdráttum LARSEN hönnun og ráðgjafar. Stærðir 347,0 m2, 899,8 m3.
Svar

Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdrættir verið uppfærðir til samræmis við athugasemdir varðandi brunaskil við útveggi, loftræsingu og meindýravarnir útveggjaklæðningar.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.