Móstekkur 26-32 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 69
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Bent Larsen Fróðason f.h. G.G. Tré ehf. sækir um leyfi til að byggja 4 íbúða raðhús á einni hæð ásamt 2 bílskúrum skv. uppdráttum LARSEN hönnun og ráðgjafar. Stærðir: 545,2 m2, 2.300,4 m3.
Svar

Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að tekið verði tillit til athugasemda eldvarnaeftirlits BÁ.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.