umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eyrargata Byrgi 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 73
1. september, 2021
Annað
Fyrirspurn
Kristján Bjarnason fyrir hönd Dana Stewart Marlin sækir um leyfi breytingum frá áður samþykktri notkun þannig að það sem samþykkt var sem íbúðarhús og geymslur verði kaffihús og vinnustofur. Var áður á fundum 68 og 69. Helstu stærðir eru 392,2m2 og 1.072,9m3
Svar

Eignin samanstendur af Óðinshúsi (1913), Rafstöðinni (1920) og geymslum (1918 og 1920).
Fyrir liggja samþykki Minjastofnunar sbr. bréf dags. 27.07.2021 og umsögn Eldvarnareftilits BÁ dags. 30.06.2021.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdrættir verði lagfærðir í samræmi við umsagnir Minjastofnunar og Eldvarnareftirlits BÁ.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.