Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir sameiginleg rými - Mathöll Selfossi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 69
8. júlí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Áður á fundi 67. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna umsóknar Rekstrarfélags Mjólkurbúsins kt. 6403210160 vegna sameiginlegra rýma í Mathöll Selfoss að Brúarstræti 2. Óskað er umsagnar byggingarfulltrúa á því hvort fyrirhuguð starfsemi samræmist samþykktri notkun húsnæðisins.
Svar

Byggingarfulltrúi staðfestir að fyrirhugðuð starfsemi er í samræmi við útgefið byggingarleyfi.
Öryggisúttekt fór fram á kjallara og 1. hæð, 1. og 7. júlí 2021. Vottorð um öryggisúttekt verður gefið út 8. júlí 2021.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við að starfleyfið verði gefið út vegna reksturs í kjallara og á 1. hæð.