Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Túngata 39
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Afgreiðslufundur- og nefnd byggingarfulltrúa nr. 67
9. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Sveitarfélagið Árborg sækir um leyfi til að endurnýja og stækka viðbyggingu, sem í dag er anddyri, norð-vestan megin við húsið og gera minniháttar breytingar á innra skipulagi í nýrri hluta hússins.
Svar

Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

820 Eyrarbakki
Landnúmer: 166053 → skrá.is
Hnitnúmer: 10090294