Deiliskipulag
Móskógar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 78
6. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillagan var auglýst frá 30. júní 2021 með athugasemdafresti til og með 11. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar, en umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum. Tillagan tekur til bygginga á tveimur lóðum, hvor um sig 1ha, sem skipt er úr jörðinni Móskógum. Heimilt verður að byggja íbúðarhús, bílskúr og skemmu á hvorri lóð.
Svar

Brugðist hefur verið við umsögn Vegagerðarinnar varðandi aðkomu að lóðunum og útfærsla tengingar unnin í samráði við Vegagerð. Skerpt hefur verið á texta varðandi veitur í samræmi við umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.