Byggingaráform - stækkun húsnæðis Austurvegi 42 yfir á Vallholt 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarráð nr. 112
29. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Erindi frá Sigfúsi Kristinssyni byggingarmeistara, dags. 17. apríl, um stækkun húsnæðis að Austurvegi 42. Þann 21. apríl sl. ályktaði skipulags- og byggingarnefnd um sama mál: Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir stækkun lóðarinnar Austurvegur 42. Nefndin samþykkir einnig að byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun húsnæðis verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir eigendum Austurvegar 40b, Valholts 11 og 13. Samþykkt samhljóða.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd hefur þegar heimilað stækkun lóðarinnar Austurvegar 42 yfir á Vallholt 15 og þannig komið til móts við hluta af óskum bréfritara. Að öðru leyti er erindinu hafnað.