Miðtún - Umsókn um framkvæmdaleyfi til nýtingar borholu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 66
21. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Jón Sæmundsson f.h. Selfossveitna bs. sækir um framkvæmdaleyfi vegna virkjunar á borholunni SE-35, lagfæringar á aðkomuvegi, framkvæmdir við borholuhús og tilheyrandi framkvæmdir vegna lagna, að og frá, fyrir væntanlega heitavatnsvinnsluholu Selfossveitna skv. meðfylgjandi erindi.
Svar

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarráð að framkvæmdaleyfisumsókn verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir eigendum Miðtúns 1, 3, 5, 7, 9, 9a, 11, 11a, 13, 15 og 17.
Samþykkt samhljóða.