Miðtún - Umsókn um framkvæmdaleyfi til nýtingar borholu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 116
3. júní, 2021
Annað
Fyrirspurn
Framkvæmdaleyfisumsókn Miðtún - Umsókn um framkvæmdaleyfi til nýtingar borholu. Erindið hefur verið grenndarkynnt og var athugasemdafrestur til 28. maí 2021. Athugasemdir/ábendingar bárust á grenndarkynningartíma.
Í framhaldi af umfjöllun skipulags- og byggingarnefndar á 70. fundi þann 2. júní 2021 lagði skipulags- og byggingarnefnd til við bæjaráð að framkvæmdaleyfi yrði veitt með þeim fyrirvara að tekið yrði tillit til innkominna athugasemda við framkvæmdina. Skipulagsfulltrúa falið að sjá til þess að hönnunargögn verði leiðrétt í samræmi við athugasemdir.
Svar

Bæjarráð samþykkir að framkvæmdaleyfi til nýtingar borholu Miðtúni verði veitt með þeim fyrirvara að tekið yrði tillit til innkominna athugasemda við framkvæmdina.