Deiliskipulag íbúðarkjarna - Nauthagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 66
21. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Lýsing deiliskipulagstillögu fyrir Nauthaga var til kynningar frá 10. mars 2021, með athugasemdafresti til og með 31. mars 2021. Umsagnir bárust frá íbúum og lögboðnum umsagnaraðilum.
Svar

Umsagnir v. lýsingar deiliskipulags lagðar fram til kynningar. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að tillögunni.
Samþykkt samhljóða.