Beiðni um vilyrði fyrir lóðum
Fossnes
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarráð nr. 127
14. október, 2021
Annað
Fyrirspurn
Beiðni frá Anpro ehf., dags. 17. ágúst, þar sem óskað var eftir framlengdu vilyrði fyrir lóðunum í Fossnesi nr. 16, 18 og 20. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á 122. fundi og óskaði eftir frekari gögnum um framvindu undirbúnings Anpró að framkvæmdum á lóðinni.
Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindis Anpró og óskaði eftir upplýsingum frá mannvirkja- og umhverfissviði um þær framkvæmdir sem sveitarfélagið þarf að ráðast í áður en lóðirnar gætu orðið tilbúnar til úthlutunar.
Minnisblað mannvirkja- og umhverfissvið að ósk bæjarráðs lagt fram.
Svar

Bæjarráð leggur til við eigna- og veitunefnd að málið verði skoðað við vinnslu fjárfestingaáætlunar.
Afgreiðslu erindisins er frestað þar til fyrir liggur kostnaðarmat og samþykkt fjárfestingaáætlun ársins 2022.