Framkvæmdaleyfisumsókn gatnagerð
Jórvík 1
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags og byggingarnefnd nr. 61
10. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Akurhólar ehf. eru að ganga frá verksamningum við verktaka vegna framkvæmdarinnar og hefur verktímanum verið skipt í tvær megin tímasetningar. Annars vegar er gert ráð fyrir að verkkaupi (Akurhólar ehf.) fái afhentan fyrri áfanga af hverfinu í október 2021, þar er verið að miða við að fyrri áfangi markist við safngötu 2, sjá skipulagsuppdrátt. Hins vegar er gert ráð fyrir að verkkaupi fái afhent restina af hverfinu í maí 2022. Við afhendingu hvors áfanga fyrir sig er gengið út frá því að verktaki skili því svæði sem um ræðir fullfrágengnu, þar með talið allan yfirborðsfrágang. Gengið verðu frá endanlegum verksamningi um verkið eigi síðar en 12 feb. 2021 og gert er ráð fyrir að framkvæmdir byrji eigi síðar en í 26 febrúar 2021.
Svar

Málinu er frestað þar sem vinnu við deiliskipulag er ekki lokið, beðið er eftir samþykki Skipulagsstofnunar.