Framkvæmdaleyfisumsókn - hjóla og göngustígur við Eyrarbakkaveg
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 32
17. febrúar, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 61. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 10. febrúar sl., liður 2. Framkvæmdaleyfisumsókn - hjóla og göngustíg.
Mannvirkja- og umhverfissvið óskaði eftir framkvæmdarleyfi vegna áframhaldandi vinnu við göngu- og hjólastíg meðfram Eyrarbakkavegi. Næsti áfangi er uppbygging á stígnum frá Stekköldu inn að afleggjara við Tjarnabyggð, malbikun á stígnum frá Kaldaðarnesvegi inn að Stekkum, uppsetning og tenging ljósastaura frá Flugvallarvegi að Stekkum.
Lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja framkvæmdaleyfið.
Svar

Tómas Ellert Tómasson, M-lista og Kjartan Björnsson, D-lista taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.