Deiliskipulagsbreyting - Miðbær Selfoss
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 35
28. apríl, 2021
Annað
Fyrirspurn
Tillaga frá 66. fundi skipulags- og byggingarnefndar, frá 21. apríl, liður 8. Deiliskipulagsbreyting - Miðbær Selfoss.
Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir miðbæ Selfoss var auglýst frá 24. febrúar 2021, með athugasemdafresti til og með 7. apríl 2021. Alls bárust sex athugasemdir við tillögun og 4 umsagnir lögboðinna umsagnaraðila. Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir innkomnar athugasemdir og umsagnir vegna deiliskpulagsbreytingarinnar. Gerðar eru óverulegar breytingar á tillögunni til að koma á móts við athugasemdir og umsagnir. Skipulagsnefnd samþykkir skjalið "Umsagnir og athugasemdir" þar sem fjallað er um allar innkomnar athugasemdir og viðbrögð við þeim og verða svör við athugasemdum send þeim sem athugasemdir gerðu.
Skipulagsnefnd lagði til við bæjarstjórn að breyting á deiliskipulagi yrði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Svar

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, Á-lista tekur til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 9 atkvæðum.